mánudagur, 23. september 2013
Ásta og Kennarinn
Ég er ekki enn búin að ákveða hvað mér finnst um það sem gerðist á milli Ástu og kennaranns.
Hann er allavegna skárri fyrir hana Ástu heldur enn Bjartur, hennar fyrirmynd og hennar faðir.
Kennarinn er aðeins yngri og menntaður maður annað en Bjartur sem er eldgamall, vondur og að auki ól hann Ástu upp sem faðir hennar.
Ásta has daddy issues...
Það er eins og Ásta geti ekki verið ein, hún þarf einhvern til að "verja" sig, mögulega eins og tíkin sem hlýjaði henni og sá um hana þegar hún var nýfædd. Beint eftir að móðir hennar dó. Hún hefur aldrei átt móður, kannski Ásta sé frekar með mommy issues..
Kennarinn var að kenna henni ýmsa nýja hluti eins og hann Bjartur gerði oft. Þannig kennarinn gæti hafa misnotað vald sitt þar sem hann var nú já, kennarinn hennar. Kennarinn var einnig undir áhrifum meðalsins.
Ég hef ekki hugmynd um hvað gerist næst, hvort að þau tvö enda saman eða að Bjartur kemst af þessu áður en sambandið þeirra fer lengra og rekur hann á brott. Ég efast ekki um það að Bjartur myndi verða brjálaður.
Það sem mér fannst skrýtið er að þetta var það óumflýjanlega, afhverju var þetta óumflýjanlegt?
~ Lelíta Rós
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Lelíta: Fínar færslur. Nonni þráir útlönd en Gvendur vill að kindurnar hafi það gott, hvor ætli líkist Bjarti meira? Og greyið Ásta, hún hefur auðvitað aldrei átt móður, það útskýrir örugglega margt. Einkunn: 8.5.
SvaraEyða