sunnudagur, 1. september 2013

Rósa & Bjartur

Mér finnst sambandið hjá Rósu og Bjarti mjög athyglisvert. Það koma partar þar sem að það lýtur út eins og Bjartur og hún eru virkilega hrifin af hvort öðru eða allavegna voru það. Í einum parti í bókinni þá kemur framm að Bjartur sérað Rósa er ekki eins glöð og björt og hún var, man ekki alveg hvernig þetta fór en þá leit út eins og hann var ástfanginn af henni áður en þau giftust. Er ekki alveg viss hvort þau séu það ennþá. Rósa er svolítið undirlátin honum Bjarti, þó hún rífst smá á móti þá endar það alltaf með að hann Bjartur vinnur. Til dæmis þegar að hún vildi ekki láta gestina sjá sig þá endaði með því að Bjartur dró hana bara framm og hún var öll skítug.  
Samt sem áður eins og þegar pabbi hennar Rósu kom og hún varð svo ánægð að sjá hann, þá sá Bjartur smá að hún Rósa væri ekki svo sátt með að vera í Sumarhúsi og að bærinn væri kannski eins fallegur og hann hélt. Það sést langar leiðir að hann Bjartur er duglegur, vinnur fyrir sínu, vill ekki skulda neinum og er strax kominn með sitt eigið land. Ný orðinn átján ára sjálfstæður maður. Ekki margir sem gætu gert það, og svo sannarlega ekki nú til dags.

~ Lelíta Rós

1 ummæli:

  1. Lelíta: Fínar færslur hjá þér, Lelíta. Þú dregur fram áhugaverðar pælingar og segir það sem þér finnst. Mundu að lesa vel yfir og vanda málfar. Einkunn: 8

    SvaraEyða