sunnudagur, 1. september 2013

Byrjun

Hingað til finnst mér Sjálfstætt fólk áhugaverðari enn ég hélt hún myndi vera. Þó eru partar í henni sem að ég skil ekki alveg en allt smellur saman þegar ég les áfram. Er ennþá óákveðin með álit mitt á honum Bjarti og á sjálfri bókinni, myndi aldrei mæla með henni fyrir þá sem hafa ekki lesið mikið af bókum þar sem það þarf góðann skilning til að geta skilið almennilegt innihald þessara bókar. Enda er þetta hann Halldór Laxness sjálfur sem er höfundur þessar bókar. Stafsetningarvillurnar trufluðu mig aðeins í byrjun en hætti eiginlega strax að taka eftir þeim þar sem að sjálf vinkona mín skrifar mjög svipað. Persónan í bókinni sem mér líkar mest við þó hún komi ekkert sérstaklega mikið framm er Hreppstjórafrúin á Útirauðsmýri því hún er svo bjartsýn og ekta sveita kona sem lýsir öllu svo vel. Þannig eiga allir að vera, bjartsýnir. Hvernig væri heimurinn ef allir væru svartsýnir? Það er góð pæling. Ein önnur góð er það hversu mikið er búið að breytast síðan á tímum Halldórs og til hingað, áður fyrr þurftu allir að vinna og vinna og vinna og gátu ekki beðið eftir því að verða sjálfstætt núna er það bara orðið frekar bara partur af lífinu fyrir sumum. Sumir unglingar bara vinna ekki neitt og eru ekki í skóla og halda að þau geta bara lifað á launum foreldra sinna. Það eru nú aldeilis. ~ Lelíta Rós

Engin ummæli:

Skrifa ummæli