Það sem staðfesti það að Bjartur væri skrímsli var þegar hann drap litla kálfinn sem allir elskuðu svo mikið nema hann sjálfur, og að sjálfsögðu þurfti hann að vera sjálfelskur og taka kálfinn frá fjölskyldunni sinni. Ég held að Bjartur eigi erfitt með að þau dái einhvern annan en hann sjálfann.
Það sást hversu mikið Finna elskaði kúnna þegar hún sagði að ef Bjartur myndi drepa kúnna þá væri hann að drepa hana. En hann gerði það samt. Hann gat ekki leyft veiku konu sinni að eiga kúnna, hann bara varð að taka alla ást frá henni sem fór ekki til hans. Svo lét hann alltaf Ástu fá kápu en ekki konunni sinni sem var greinilega að deyja úr kulda. Ég gæti talað um Bjart í nokkra daga en enda niðustaðan myndi alltaf vera sú sama, Bjartur er skrímsli.
Ég vorkenni konunni hans, Finnu, svo innilega mikið. Hún í raun lá bara uppí rúmmi langmestann tímann af hjónabandinu. Hún var svo veik og fékk eiginlega enga umhyggju frá manninum sínum. Hann jú reddaði henni meðulum en það var í raun það eina sem hann gerði fyrir hana.
Hún vældi samt aldrei, ef ég hefði verið hún hefði ég alltaf verið að skamma Bjart fyrir að vera ekki hjá mér og tala við mig, en það var náttúrulega allt öðruvísi á þessum tíma.
~~Lelíta Rós
Lelíta: Fínar færslur. Þú færir góð rök fyrir því að Bjartur sé skrímsli. Sjáum hvað setur. Einkunn: 8
SvaraEyða