mánudagur, 16. september 2013

Bjartur og Ásta

Samband Bjarts og Ásu fannst mér þróast í mjög einkennilega átt og mjög óviðeigandi.
Við fyrstu sýn virtist Ásta vera hrifin af honum Bjarti og þegar þau fóru saman á Fjörð og sváfu saman í rúmi, þar sem hann snerti líf hennar. Hún naut þess, hún róaðist. En það var aðallega því áður var hún hrædd og skelkuð, hún var svo ung vissi ekki almennilega hvað var rétt og rangt.  
Þegar lengra er lesið þá kemur framm að Ásta sé hversu ,,ljótt" þetta var eins og hún orðaði þetta. Henni finnst það óþægilegt hvernig hann horfir á hana núna.
Á þeim tíma sem þau voru á Firði þá var konan hans Bjarts, Finna, veik heima og vissi ekkert hvað er í gangi. Samúð mín fór beint til hennar, en núna er samúðin hjá Ástu. Bjartu er/var hennar fyrirmynd, hann er tvöfald hennar aldur og hann er henni sem faðir. Þetta væri bara alltof rangt ef þau tvö myndu enda saman.
Bjartur sýnir  merki um ást til Ástu á undarlegann hátt til dæmis tekur maður eftir því að hann vill ekki að neinn annar maður fær hana þegar kaupmaðurinn hrósar henni og segjir að hún gæti verið hentug fyrir son sinn, þá vill Bjartur ekki einu sinni byrja að ræða um hjónaband fyrir Ástu. En á þessum tíma voru lang flestir sem flýttu sér í að festa dætur sínar.

~~ Lelíta Rós

Engin ummæli:

Skrifa ummæli